Velkommen til
Myndasöfn
13.03.2007 00:27:27 / systur

And I´m back in the game ;-)

jæja þá...

Helstustu fréttirnar af mér þessa dagana er að ég er nú loksins að fara í háloftin aftur. Byrja 1.apríl og ég vona að það sé ekki aprílgabb :haha: Svo er ég fiðrildið að fara að flytja aftur, við erum búin að kaupa voða fínt parhús sem ég er búin að vera að teikna inní síðustu daga þannig að það verður bara gaman að fara að stússast í flutningum aftur. Langamýrin var að fara á sölu á föstudaginn þannig að ef ykkur langar að flytja eins og ég er alltaf að gera þá er það í boði hehe http://mbl.is/mm/fasteignir/fasteign/?eign=239561

Svo er ég svona að vona að ég fari að komast til sjöppen í smá orlof með Bettý þar sem við eigum nú svo mikið af frímiðum systurnar.

Jæja ég held að ég hafi þetta bara stutt svona í fyrsta skiptið eftir blogg frí og vona að ég verði aðeins duglegri að uppfæra en ég hef verið undanfarið....

over and out


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.01.2007 13:13:37 / systur

Happy new year!!

This is a toast to all us beautiful ladies for 2007. For the men who are fortunate enough to have us, the losers who had us and lost us :!: and the very lucky bastards who are still to meet us ;)

HAPPY NEW YEAR :lol:


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 01:57:47 / systur

NY again...

Hola lola.

Þá er maður komin heim frá stóra epplinu og er að fara aftur þangað á morgun.... já ég held áfram að fá þessar brill skrár, er að fara líka til Orlando og svo í verkefnos í Madrid í lok nóv...... ég veit eiginlega ekki sjálf hverjum ég er að sofa hjá þarna hjá Icelandair.... en ég er greinilega að gefa hann góðann :haha:

En það sem ég upplifði í NY var nú ekki eins margt og ég ætlaði mér þar sem ég var með dágóðan hausverk allan tímann og ég lærði allavega það að hausverkur lagast ekki í NY... hann fjórfaldast :^) En allavega þá fór ég á fimmtudagskvöldið á frekar freaky stað með tveimur fluffum og flugmönnunum. Þar voru allir þjónarnir í dragi og nýbúið að vera eitthvað show sem við misstum af, en maturinn var fínn og kvöldið mjög skemmtilegt. Svo á föstudeginum þá vaknaði ég með góðan hausverk sem var að þessu sinni ekki eftir stífa drykkju kvöldinu áður. Þannig að fyrsta verkefnið mitt var að leyta mér að verkjapillum til að geta kíkt eitthvað út að skoða borgina. Ég kíkti á Rockafeller center og ætlaði mér að skoða Empire state, en þegar ég hélt að ég hefði náð þangað áttaði ég mig á því að ég stóð inní Crystler byggingunni..... já eins og ég sagði hausverkur og NY.... ekki góð blanda :whut: enda ekki skrítið að maður ruglist aðeins á öllum þessum sky high byggingum sem eru þarna því þær eru allar nokkuð líkar. Ég ákvað því að hætta þessum túrista leik og kíkja bara í búðir og náði að versla mér nokkur vel valin heil dress ;) takmarkið mitt á fimmtudaginn er svo að kíkja á Canal street og versla mér eins og eitt stk. veski ef ég verð ekki rænd 8|

En það er endalaust margt skemmtilegt hægt að gera þarna og skoða þannig að ég ætla að auglýsa eftir einhverjum sem vill eiga date með mér í NY á næstunni...... ég splæsi einum drykk og með því ;) tilboð óskast send sem fyrst. Ég verð vonandi komin með eina Cucci til að halda í þá ef vel gengur á Canal :lol:

Over and out í bilos.


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 00:41:08 / systur

My first trip to NY

Jæja þá er maður að fara loksins til New York..... er búin að vera að browsa netið til að athuga hvað maður á að skoða og gera á þessum eina sólahring sem maður getur eytt í stórborginni. Vildi nú samt að ég hefði einhvern ferðafélaga því það er ekkert spes að túristast alltaf einsamall. En þar sem ég er nú orðin svo vön eftir sumarið þá verður þetta bara stuð stuð stuð eins og alltaf:lol:

Kem svo aftur hem á laugardaginn og segi ykkur þá allt af létta.

Yfir í aðra sálma..... þá er ég búin að vera að fara í gegnum ýmislegt dót og fatnað sem ég á víst orðið allt of mikið af. Ég og móðir mín erum að spá í að fara eina helgina í kolaportið með stellið og græða penge....8| sé fyrir mér svipinn á nokkrum núna þar sem ég hélt að það væri það síðasta sem ég myndi taka mér fyrir hendur væri að fara að selja mig í kolaportinu.... en vitir menn.... þið eruð að lesa rétt!!!!  ´

Ég er sem sagt loksins búin að átta mig á að maður getur ekki gengið í öllum þessum fötum sem ég hef náð að sanka að mér þó svo að ég hendi nú reglulega.... eða svona set allavega upp á háaloft hjá ýmsum sem hafa plássið sem ég hef ekki fyrir þetta. En í dag datt ég líka á svona helvíti fínan cokteil kjól sem ég greinilega hef keypt í einhvert skiptið og ég sagði að ég myndi nú örugglega eiga eftir að nota þetta einhverntíman aftur.... en móðir mín var nú ekki alveg á sama máli þar sem henni finnst ég alltaf vera að versla eitthvað nýtt......  Ásta þú veist það vel að þú notar bara þetta nýja sem þú ert að kaupa þér og átt aldrei eftir að fara í þetta aftur..... þannig að ég hafi nú á réttu að standa og muni nota þennan úber skutlu cokteil kjól aftur þá óska ég hér með eftir cokteilboði þar sem ég get mætt í dressinu :lol:  ef ég fæ mörg boð þá á ég örugglega fleiri cokteil dress til að nýta aftur ;)

Jæja best að fara að koma sér í ró..... og hvíla sig fyrir öll cokteilboðin sem eru væntanleg næstu helgar.  Kys og kram, ég.


» 9 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 17:02:59 / systur

Komin heim á ný...

Hoj hoj...

Þá er maður enn og aftur komin heim og í þetta sinn frá Krít í rúma viku, helvíti næs að liggja á ströndinni með tærnar upp í loft á fullum launum. Tóti fékk nú að koma með í þetta sinn af því að hann er búinn að vera svo helvíti þægur undarnfarnar vikur, farinn að pissa í kopp og orðinn ágætlega húsvanur;-) Þannig að við erum búin að vera búsett á Krít sl. viku og hafa það bara mjög gott. Ætluðum að gera alveg heilmargt sem varð svo að engu þegar komið var að því að fara heim. Ég held að dagarnir þarna í úglöndum séu helmingi fljótari að líða en hérna heima sko :$

Annað en þetta þá er lítið að frétta nema ég er að spá í að fara að hendast í að þrífa stúdíóíbúðina okkar og klára að losa hana þannig að hægt sé að fara að græða einhverja peninga á henni þar sem hún rakar ekki inn miklar tekjur á að standa svona auð og yfirgefin.

Og eitt svona að lokum.... sérstaklega fyrir eina sem ég veit að mun hafa gaman af ;-)

DIVORCED BARBIE
One day a father gets out of work and on his way home he remembers that it's his daughter's birthday.

He pulls over to a toy store and asks the salesperson, "How much is the Barbie on the display window?"
The salesperson answers, "Which one? We have:

Work out Barbie for $19.95
Shopping Barbie for $19.95
Beach Barbie for $19.95
Disco Barbie for $19.95
Divorced Barbie for $265.95


The amazed father asks: "What? Why is the Divorced Barbie $265.95 and the others only $19.95?"

The salesperson annoyingly answers: "Sir..., "Divorced Barbie comes with:
Ken's Car, Ken's House, Ken's Boat, Ken's Furniture, Ken's Computer and one of Ken's Friends" 

Later..... ÁK


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.09.2006 23:31:52 / systur

Orlando again...

Helgin var bara nokkuð góð og vil ég þakka þeim Yamaha hljóðfæraeigendum sem komu kærlega fyrir komuna og þeim sem komu ekki..... ja bíðiði bara þangað til ég býð í svona flott samsæti aftur:!:

Annars ætla ég að hendast aftur til Orlando á morgun í stutt stopp og ligga jafnvel bara í afslöppun við sundlaugarbakkann á miðvikudaginn. Þannig að þessi vika verður jafn stutt og sú síðasta og eiginlega bara allar vikur í þessum mánuði  hafa verið stuttar þar sem ég hef verð að fara í usa flug á þriðjudegi og koma heim á fimmtudegi og þá er bara komin helgi aftur og hægt að fara að blanda í einn drykk :lol: 

Jæja ég vona að allir njóti vikunnar og séu farnir að hugsa út í drykki næstu helgar.... ég var að fljúga með einni sem átti bók með cokteilum fyrir hvern dag ársins... 365 cokteilar... dem hvað ég yrði blaut ef ég myndi komast yfir þá bók :P


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.09.2006 23:43:44 / systur

Los helgos

Jæja þá er maður búin að stússast í Orlando og helgin að bresta á. Dagskrá helgarinnar eru eftirfarandi:

Föstudagur: Opið hús, ég ætla að halda tónleika á Yamaha hljómborðinu mínu og hafa snittur og cockteila á borðum. Bara svona léttur föstudagsstemmari. Frítt inn fyrir Yamaha hljóðfæra-eigendur :lol:

Laugardagur: Er að spá í að taka því nokkuð rólega, kanski 1-2 drykkir og þeir sem eru alveg sjúkir í mig meiga bjóða. Ég meina ekki á hverjum degi sem svona frægur Yamaha hljóðfæraleikari er á lausu!

Sunnudagur: 06:00-14:15 > hvíldartími. 15:15-00:30 > Londres on the rocks.

Over.. ÁK


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.09.2006 23:17:13 / systur

I´m alive...

Ég vil bara byrja á að óska sjálfri mér til hamingju með að vera komin í netsamband aftur..... tók svona smá tíma að plögga sér í samband í nýja húsinu en það tókst að lokum eftir 2 löööööööng símtöl í þjónustuver símans þar sem ég held að ég hafi horft á heilan friends þátt á meðan ég beið eftir aðstoð :^)

Þannig að núna ætla ég að fara að setja reglulegri fréttir inn *hóst*hóst*:!:

Ég skellti mér í eyjarnar á laugardaginn með stínu fínu og skemmtum okkur bara nokk vel í góðum félagsskap. Þar sem liðakeppni í þynkutremma á sunnudeginum stóð uppúr þrátt fyrir tap sem orsakaðist af Hjalta meðspilara mínum...... Hann fær sko ekki að vera oftar í mínu liði.... enda tapar mitt lið ALDREI!!!! Það var allavega ekki mér að kenna að liðsmaður minn bókaði hitt liðið í vélina á undan okkur..... FACE!!!

Svo tekur alvarleikinn við á morgun þar sem ég er að fara til Orlando ohhhhh I hate my job :lol: Svo verður vonandi bara einhver áframhaldandi skemmtidagskrá um helgina. Spurning hort maður nái Bettý eitthvað út eða hvort rólegt og rómantískt sé never ending story :!:

Jæja þá ætli maður verði ekki að fara að lakka á sér neglurnar fyrir flugdólgana á morgun.

Bið að heilsa í bilos..... ÁK


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 18:33:00 / systur

Diskó diskó diskó - FRISKÓ

Var að koma frá Friskó í gær og það var bara gaman:-) Óheppnir þeir sem vildu ekki koma með mér -......... nefni engin nöfn Krístín Inga frænka mín :lol:

Ég náði nú að afreka nokkuð á þessum 2 dögum... meðal annars:

Narta í úber skammt af quesadillas.... það var eins og lítill fugl hefði verið að narta í diskinn þetta var svo heavy skammtur.... að sjálfsögðu hvergi annarsstaðar en í Bandó

Shoppa aðeins á sjálfa mig að sjálfsögðu, einn I-pod, I-home o.fl skemmtilega hluti. Allir alveg bráðnauðsynlegir fyrir dömuna:lol:

Fara í sporvagn og líða eins og í rússíbana á 20 km hraða....  göturnar þarna eru eins og never ending story.... upp og niður, upp og niður... o.s.frv.

Skoða mig um á Fishermans warf og taka nokkrar túrista myndir af Alcatraz....

Borða alveg heavy góðan túna og hvítvín meðþví.

Lenti í stokker á rauðu ljósi sem fannst ég vera með fallegasta hár sem hann hafði séð..... svo úber sentimental þessir kanar og geta talað endalaust við alla sem þeir þekkja ekki neitt.... verð nú að koma því á framfæri að ég var náttúrulega með slegið sko... þannig að kanski ekki skrítið heheh:haha:

Láta næstum brjálaðan leigubílstjóra drepa mig í umferðinni í China town.... og ég er ekki bílhrædd takk fyrir!!

Kaupa allar jólagjafirnar... jamm ég veit það er bara ágúst en maður verður náttúrulega bara í orlofi í des þegar allir verða á útopnu í stressinu ;) Einnig örugg leið til að enginn skipti jólagjöfunum frá manni :lol:

Þetta var svona það helsta sem ég náði að afreka á tveimur dögum.  Þetta er líka bara skemmtileg borg að koma til, ég var nú búin að koma þangað fyrir 9 árum en ennþá skemmtilegra að koma aftur núna, en náði samt ekki að skoða helminginn af því sem ég hefði viljað skoða. Þarf alveg vikuna í það held ég.... aldrei að vita nema maður skelli sér í okt ef maður verður í stuði þar sem það á að fara að hætta að fljúga þangað... frekar glatað :cry:

En ég get samt haldið áfram að ferðast til Bandó því ég fékk bara fína skrá núna í sept... 3 bandó flug og fullt af dagpeningum hehehe ;)

Jæja.... ég ætla að fara að reyna að gera eitthvað af viti og fara í biografen eða taka mér spólu svona til að slap lidt af.

Miss friskó kveður að sinni


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.08.2006 19:04:49 / systur

Já það er eins gott að það verði ekki ófært á föstudaginn!!!!!!!!!!!!!!!

Ég er búin að festa kaup á miða á þjóðhátíð.....  og það hefur ekki gerst í fimm heil ár takk fyrir 8)

Ég gerði nefnilega veðmál síðasta sumar við systur mína á einum af fáum vínsmökkunarkvöldum sem við áttum í Sjöppen að ef ég yrði í fríi um versló þá myndi ég nú skella mér til eyja....... og var nú alveg róleg á því og bjóst nú alls ekki við að fá frí þessa helgi þar sem ég bað ekkert um það og hélt ég myndi nú sleppa við að efna veðmálið góða frá árinu áður. En vitir menn ég hélt að það myndi líða yfir mig þegar ég fékk skránna mína fyrir ágúst og ég fékk úber stutt glasgow flug á föstudeginum sem þýðir að ég verð komin heim um hálf tvö leytið og svo fer ég ekki aftur fyrr en seinni part á mánudaginn. Þannig að systir mín var fljót að láta mig standa við stóru orðin og var mér því skipað að kaupa miða í forsölu þannig að ég myndi nú örugglega fara :lol:

Svo ég rétt slapp í að panta flug seinnipart á föstudaginn og heim á sunnudeginum því maður má nú ekki líta úber riðgaður út í uniforminu.... þannig að nú verður bara að vera flug og veðrið skikkanlegt því annars verður ekki hægt að vera nálægt mér þessa helgi, þar sem ég er nú loksins á leið á þjóðhátíð og alein í þokkabót þannig að ég verð örugglega upp á mitt besta........ segja þeir sem þekkja vel til mín :haha:

Vona sem sagt að ég hitti bara allt skemmtilega fólkið í eyjum þar sem ég mun meðal annars halda uppboð í tjaldinu hjá henni Bryndísi fósturmömmu minni eftir loforð sem ég gaf henni í dálítilli riðgun á síðasta sunnudagsmorgun þar sem ég vaknaði í MSP.......... og ef það verður ekki flug:^)...... já þá bara verð ég bara á koju fylleríi heima hjá mér og allir velkomnir!!! Vinsamlega pantið miða á föstud. eftir kl. 14:00 í síma 6927200.

Over and out.... Ásta


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.07.2006 22:25:16 / systur

Sól og sumar í viku....

Við litla fjölskyldan ætlum að reyna að skella okkur í vikufrí í sólina í næstu viku. Ég náði að riðla skránni minni aðeins til að gera manninn og barnið ánægt í sumarfríinu sínu :lol:

Ég er að fara til Boston á þriðjudaginn og kem heim á fimtudagsmorgun.... ætla að vona að ég nái svo 2-3 tímum í svefn í Kef áður en Betty og Þórarinn koma að sækja mig þar sem við eigum svo flug rétt eftir hádegið.  En hvað gerir maður ekki fyrir smá sól og sumar þar sem maður býr á Norðurpólnum:!:

Jæja ætla að fara að koma mér í rúmið þar sem það er ræs í nótt fyrir úber spennó CPH flug í fyrró.

Adios amigos..... ÁK


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.06.2006 16:03:34 / systur

Hoj hoj

Jæja ansi langt síðan maður hefur látið heyra í sér. Enda er ég búin að vera netlaus í nokkrar vikur þökk sé þeim einu sem voru með opið net í blokkinni hjá mér og þurftu endilega að flytjast á brott :$ Er ekki að tíma að láta opna hjá mér netið í nokkrar vikur þarna og svo aftur þegar við flytjum, sem verður von bráðar......ef  Þórarinn verður duglegur að flísaleggja :lol:

Ég og frú Sallý erum með svipurnar á lofti þar sem við erum að keppast við að komast sem fyrst inn í slotin okkar. Það þýðir nú ekkert að láta þá vera eitthvað að drolla sko :lol:

Annars gengur bara allt alveg ljómandi í fluginu... er búin að vera með ansi stífa skrá þannig að ég hef lítið verið heima en mér sýnist það verða eitthvað betra í júlí, þá get ég kanski farið að hjálpa kellllinum eitthvað!!!! Betty er netlaus líka þannig að hún hefur ekkert verið að krota hér inn, en ég reyni að henda inn nokkrum línum svona þegar ég man eftir....... sem er greinilega mjög sjaldan núorðið :$

Ég er nú samt að spá í að fara að kíkja mér aðeins í húsið og ath hvort ég geti orðið að einhvrju gagni... sópað eða svona eitthvað vinnukonulegt.

Bið að heilsa að sinni...... adios


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 19:08:44 / systur

Smá update

Það er búið að vera allt á fullu hjá mér í skólanum, lesa og aftur lesa. Búin að taka 2 próf og 2 eftir. Fór svo til Osló á laugardaginn síðasta og var alveg að meika það í crewinu. Það verður svo partý hjá bekknum á fimtudaginn þar sem á aðeins að skvetta í sig og svo verður airplane visit á föstudagsnótt. Smá svefn og svo verður líklega skvett aðeins meira í sig á laugardagskvöldið. Þannig að maður mæti nú vel sjúskaður og fínn á mánudagsmorgun í tíma. Já það tekur á að vera á fluffunámskeiði ;-) Svo er maður bara að éta gras og drekka vatn inn á milli áfengu drykkjana til að passa nú í uniformið.... og stefnan er tekin á mjónubuxur í næstu viku. Hæ hó alliúbba Jæja ætla að laga einn skvísukjól áður en ég fer í grasið og Prison break. Love-a (Ásta) ..........ohhh sooo fyndin

» 5 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 09:34:44 / systur

Hoj hoj...

Ég legg hrikalega spennt af stað inn í nýja viku.... Ákváðum parket, flísar um helgina og erum að bíða eftir tilb. í eldhúsinnréttingu. Þannig að vonandi getum við byrjað að gera eitthvað af viti þessa vikuna. Helgin fór á þá leið að ég fékk mér sushi og hvítt á laugardaginn og mjög svo hátíðlegan white russian í eftirrétt þannig að þetta varð nú skárra en leit út fyrir á föstudaginn ;)

Byrjaði á nýrri seríu af 24 í gærkvöldi og það eina leiðinlega við þessa þætti er að ég verð svo spennt að ég get ekki hætt að horfa helst fyrr en allir þættirnir í seríunni eru búnir.... þannig að það verða örugglega amk tveir þættir fyrir svefninn alla vikuna.

Kv. Ásta Bauersdóttir


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.04.2006 15:51:51 / systur

Afleggjari af peningatré óskast!!

Ég er með hrikalegustu Köben heimþrá frá því að ég flutti aftur á klakann....... ef ég ætti peningatré úti í garði þá væri ég á leiðinni upp á flugvöll og myndi sötra einn kaldann á Nyhavn svona um 9 leytið í kvöld... sjæks hvað það yrði sjúklega gott. En þar sem ég hef ekki fundið afleggjara af moneytré þá væri annar valkosturinn minn að fá mér hvítvín og sushi í kvöld............. en nei það er ekki heldur í boði þar sem maður býr langt frá allri heimsmenningu sem höfuðborgin hefur upp á að bjóða. Þannig að ég er að spá í að fara í fílu, hætta snemma að vinna í dag, dingla hjá Betty og fara að grenja. God weekend alle sammen.

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Dagsetning
9. febrúar 2012
Klukkan